|
Velkomin til B&T
Hjá okkur starfa starfsmenn með áralanga reynslu af bílasprautun og bílaréttingum. Verkstæðið er vottað Cabas verkstæði. Við notum hágæða Sikkens bílalökk sem eru umhverfisvæn og standast hörðustu kröfur bílaframleiðanda.
B&T var opnað þann 23.september 2005 að Skemmuvegi 44M. Eigendur þess eru Sæmundur Hreinn Gíslason og Þorlákur Ásmundsson. Hjá verkstæðinu starfa fjórir starfsmenn og tveir nemar. Starfsmenn B&T hafa viðað að sér aukinni þekkingu á starfi sínu með hinum ýmsu námskeiðum hérlendis sem og erlendis. Það er markmið fyrirtækisins að bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu og fagleg vinnubrögð við viðgerð ökutækja.
Verkstæðið
er búið fullkomnustu tækjum sem völ er á í faginu svo sem Autorobot
réttingabekk með öllum þeim mælitækjum sem til þarf til viðgerðar á bíl
eftir tjón, Herkules lyftur og Omia sprautuklefi sem er einn sá fullkomnasti á landinu. Við sprautun á bílum er notast við hágæða Sikkens bílalökk sem eru umhverfisvæn vatnslökk og standast hörðustu kröfur
bílaframleiðanda. Öll verkstæði verða að vera komin með þessi
umhverfisvænu lökk í lok árs 2006. Verkstæðið er vottað Cabas verkstæði. Starfsþjálfun hefur farið fram í Svíþjóð í verksmiðjum Akzo nobel sem er framleiðandi Sikkens bílalökkum. Verkstæðið þjónustar allar bíltegundir.
Ţorlákur Ásmundsson Eigandi Bílamálari
Sćmundur H. Gíslason Eigandi Bifreiđasmiđur Gísli Sigurjónsson Bifreiđasmiđur
Jóhann D. Pálmason Bílamálari
Guđmundur B. Pálmason Nemi í bifreiđasmíđi |
|
|

©Öll réttindi áskilin B&T 2010. Bílaréttingar og bílasprautun |